Hármótunar efni með góðu haldi fyrir fíngert & venjulegt stutt hár. Hentar vel bæði í úfna greiðslu og sléttari stíl með miðlungs gljáa og mattri áferð.
Dreifist vel í gegnum hárið til þess að auðvelda mótun og stjórn auk þess sem hárið verður ekki hart.
LYKILINNIHALD: Argan olía rík, nærandi olía.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR: Nuddaðu smá af efninu í lófana á þér, dreifðu því jafnt í hárið og mótaðu að vild. Settu í þurrt hár fyrir sterkara hald með minni gljáa, eða settu í handklæðaþurrt hár fyrir minna hald með meiri gljáa.